Jæja jæja jæja. Frá nógu að segja. Hmmm. Suumsé. Kosningar komnar og farnar með örlitlum vonbrigðum en líka stolti því við erum yfir þrjátíu prósent. Eins og segir í einhvurri bíómyndinni: We're number two, and that ain't bad!
Á miðvikudaginn fór ég í púl á eitthvað djoínt á Hverfisgötunni með Gunnu, Ásthildi og David. Inga Lilý kíkti líka við, örlítið ölvuð, en hún mátti það alveg því hún var að klára að verja ritgerðina sína í Lyfjafræði. Ég sökka í púl, en skána þó eftir einn eða tvo bjóra. Hafði annars ekki farið í púl síðan ég á IUSY þingi í Þýskalandi fyrir lange tid siden. Hmmm. Bloggið mitt er nú ekkert að verða skemmtilegra. Verð að krydda þetta eitthvað. Á fimmtudaginn fékk ég mér nýtt hár, fór í Kringlen með Gunnu og í heimsókn til Ransý og títlu og hitti Arnar og fékk yfirferðina á ritgerðinni og svo hringdi Doja og bauð mér á afmælissýningu Íslenzka dansflokksins í Borgarleikhúsinu. Vala, kærastan hans Vigga, er að dansa þar og bauð okkur miða. Þetta var alveg snilld.
Ú ú ú. Þriðjudagurinn sko. Þá fór ég í bíó með Völlu að sjá How to lose a guy in 10 days. Þurfti nú ekkert að sjá hana, losa mig við karlmenn á muuuun skemmri tíma en það. Ehhh. Já. Hey, Buffy er að byrja í sjónvarpinu. Buffy rúlar. Bæ.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim