Me, me, me.

APATHY ON THE RISE, NO ONE CARES

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavik, Iceland

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Ó, svei! Ó, vei! Ég skrifa eina hroðvirknislega grein (ÓK, þær hafa nú alveg verið fleiri, látum það liggja milli hluta) því systir mín var að FÆÐA og fæ fulla reiði Sighvats Björgvinssonar á haus mér! Ójæja! Svona er lífið!
Eeeen allavega!

Ég á pinkulitla sæta frænku! Ransý systir og Hlynur áttu 17 marka stúlkukríli þriðjudaginn fjórða febrúar, 2003!!! Hún var tekin með sogklukku og þurfti að fara í hitakassa, greyið, en hún var nú eldsnögg að jafna sig og fljót að koma sér á brjóstið!! Hún er með kolsvartan lubba og hökuskarð (eins og Hlynsi) en lítur annars út eins og pinkuponsu eskimói (mínus loðfeldurinn, of course)!

:D ( <- stolta ég)

Hahahæ, nú verð ég bara að finna handa henni álitlegt mannsefni. Hmmm... ég hef nú einn í sigtinu, hann er einmitt tveggja ára - ágætis aldursmunur...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim